Sergio Ramos í Sevilla (Staðfest)

Sergio Ramos.

Mynd: Sevilla

Sergio Ramos.

Mynd: Sevilla
Varnarmaðurinn Sergio Ramos er genginn í raðir uppeldisfélagsins Sevilla eftir 18 ára fjarveru.
Ramos hafnaði stærri tilboðum frá Tyrklandi og Sádi-Arabíu til þess að skrifa undir samning við Sevilla.
Ramos, sem er 37 ára gamall, lék síðast með Sevilla árið 2005 en hann hefur átt magnaðan feril síðan þá. Hann hefur leikið með Real Madrid og PSG, ásamt því að hafa spilað 180 landsleiki með Spáni.
„Ég er loksins kominn heim," sagði þessi frábæri varnarmaður eftir að hafa skrifað undir.
„Í dag er mjög sérstakur dagur fyrir mig."
Sjá einnig:
Ramos hafnaði mun stærri tilboðum - Skuldaði vini sínum