West Ham keypti Irving og lánaði til Austurríkis (Staðfest)

Irving í hörkuslag gegn Austria frá Vínaborg.

Mynd: Getty Images

Irving í hörkuslag gegn Austria frá Vínaborg.

Mynd: Getty Images
West Ham United festi kaup á skoska miðjumanninum Andy Irving í sumar en hann mun ekki ganga í raðir félagsins fyrr en næsta sumar.
Irving er 23 ára gamall með fjóra landsleiki að baki fyrir yngri lið Skotlands en hann var hjá SK Austria Klagenfurt á síðustu leiktíð.
Hann reyndist lykilmaður í liði Klagenfurt sem endaði um miðja efstu deild í Austurríki. Hann vakti mikla athygli á sér og er nú búinn að gera samning við Hamrana, sem eru búnir að lána hann beint aftur í austurríska boltann.
West Ham er talið borga um 1,5 milljón punda fyrir Irving, sem hefur verið líkt við ítalska miðjumanninn fyrrverandi Andrea Pirlo.
Ekki er tekið fram hversu langan samning Irving gerði við West Ham, en talið er að sá samningur gildi í það minnsta til 2026.




