Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 04. október 2020 10:31
Ívan Guðjón Baldursson
Foyth til Villarreal (Staðfest) - Framlengir við Spurs
Mynd: Getty Images
Argentínski miðvörðurinn Juan Foyth er kominn til Villarreal þar sem hann mun spila í eitt ár á lánssamningi frá Tottenham. Hann hefur þá um leið framlengt samning sinn við Tottenham um eitt ár til að tapa ekki verðgildi skildi hann vera áfram í London næsta sumar.

Foyth er 22 ára gamall og hefur spilað 30 leiki á þremur árum hjá Tottenham.

Með lánssamningi Foyth fylgir kaupmöguleiki sem Villarreal getur nýtt sér undir lok tímabils og hljóðar hann uppá 15 milljónir evra.

Foyth á tíu leiki að baki fyrir argentínska landsliðið og mun berjast við menn á borð við Raul Albiol og Pau Torres um byrjunarliðssæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner