Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 04. október 2020 17:43
Ívan Guðjón Baldursson
Ibrahima Diallo til Southampton (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Southampton er búið að ganga frá kaupum á Ibrahima Diallo, 21 árs miðjumanni frá Frakklandi.

Southampton greiðir um 15 milljónir evra fyrir Diallo sem á 15 leiki að baki fyrir yngri landslið Frakka.

Þetta ungstirni á að fylla í skarðið sem Pierre-Emile Höjbjerg skildi eftir þegar hann gekk í raðir Tottenham fyrr í sumar.

Diallo er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Southampton í sumar. Varnarmennirnir Kyle Walker-Peters og Mohamed Salisu voru fengnir fyrr í sumar fyrir rúmlega 20 milljónir punda í heildina.

Diallo á eldri bróður sem leikur fyrir PSG, hann heitir Abdou Diallo og er 24 ára gamall miðvörður.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner