Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 04. október 2020 11:00
Ívan Guðjón Baldursson
Man City ætlar að stela Alex Telles
Powerade
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Félagaskiptaglugginn lokar annað kvöld og eru mörg félagaskipti því á síðustu metrunum. Það eru ansi mörg skipti yfirvofandi og er hægt að búast við mikið af (Staðfest) fréttum í dag. BBC tók saman part af slúðrinu og bjó til pakka.


Arsenal ætlar að reyna við Jorginho, 28 ára miðjumann Chelsea, eftir að hafa mistekist að krækja í Houssem Aouar, 22, frá Lyon. (ESPN)

Ryan Sessegnon, 20 ára kantmaður Tottenham, er á leið til Hoffenheim á lánssamningi. (Daily Mail)

Manchester City ætlar að stela bakverðinum Alex Telles, 27, á undan nágrönnum sínum í Manchester United. Telles er leikmaður Porto. (90Min)

Newcastle, West Ham og Crystal Palace vilja fá Theo Walcott, 31, að láni frá Everton. (Teamtalk)

Chelsea hafnaði lánstilboði frá FC Bayern fyrir Callum Hudson-Odoi, 19, sem innihélt kaupmöguleika sem hljóðaði uppá 70 milljónir punda. (Daily Mail)

Tiemoue Bakayoko, 26, er að gangast undir læknisskoðun hjá Napoli þessa stundina. Hann mun leika fyrir félagið að láni frá Chelsea. (Daily Mail)

Barcelona er búið að bjóða 15 milljónir evra í spænska miðvörðinn Eric Garcia, 19, sem leikur fyrir Man City. Garcia var ekki í leikmannahópinum sem gerði jafntefli við Leeds á laugardaginn. (Daily Mail)

PSG er að undirbúa betra lánstilboð í Dele Alli, 24 ára miðjumann Tottenham, eftir að fyrsta boði var hafnað. (Telegraph)

Liverpool mun veita Man Utd samkeppni þegar kemur að franska kantmanninum Ousmane Dembele, 23. Barcelona vill helst ekki lána leikmanninn heldur selja hann. (Sport)

AC Milan hefur bæst í kapphlaupið um Antonio Rüdiger, 27, sem er eftirsóttur af PSG og Tottenham. (Calciomercato)

Juventus er í viðræðum við Everton um Moise Kean, 20, sem félagið seldi til Everton á sínum tíma. (Corriere dello Sport)

Leeds er búið að leggja fram tilboð í brasilíska kantmanninn Raphinha, 23, sem spilar fyrir Rennes í Frakklandi. (Goal)

Leeds er einnig búið að leggja fram bætt tilboð í Todd Cantwell, 22, sem er framherji hjá Norwich. (Football Insider)

Man Utd ætlar að bjóða 4 milljónir evra fyrir 16 ára varnarmann Sochaux, Willy Kambwala. (RMC)

FC Bayern er nálægt því að ganga frá kaupum á Marc Roca, 23 ára miðjumanni Espanyol sem kostar 15 milljónir evra. (Sport)

Watford hefur áhuga á Barry Douglas, 31 árs varnarmanni Leeds United. (Football Insider)

PSG er í viðræðum við Ajax um kaup á Lisandro Martinez, 22 ára miðjumanni. (AS)
Athugasemdir
banner
banner
banner