Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 04. október 2020 09:20
Ívan Guðjón Baldursson
Watford fær 10 milljónir fyrir Luis Suarez (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Watford er búið að selja kólumbíska framherjann Luis Suarez til Granada á Spáni fyrir 10 milljónir punda.

Suarez verður 23 ára í desember og spilaði ekki leik á þremur árum hjá Watford. Fyrsta tímabilið var hann lánaður út til B-liðs Valladolid, annað tímabilið skoraði hann 7 mörk fyrir Gimnastic og í fyrra gerði hann 19 mörk í 38 leikjum fyrir Real Zaragoza í spænsku B-deildinni.

Hann var markahæstur hjá Zaragoza og skaut liðinu alla leið í umspil um sæti í efstu deild en lengra komst liðið ekki.

Síðasta tímabil snarhækkaði verðmiðann á Suarez og ákvað Granada, sem er í Evrópudeildinni, að ganga frá kaupum á honum.
Athugasemdir
banner
banner