Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mið 04. nóvember 2020 23:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Haaland í mjög óþægilegu og skrítnu viðtali eftir leik
Mynd: Getty Images
Erling Braut Haaland skoraði tvö mörk fyrir Dortmund í 3-0 sigri á Club Brugge í Meistaradeildinni í kvöld. Thorgan Hazard skoraði þriðja markið.

Haaland var að skora sitt fimmta og sjötta mark gegn belgísku liði á ferlinum og var í viðtali eftir leik sem sýnt var á CBSSports.

Haaland er oft á tíðum stuttorður í svörum og í kvöld fékk hann nokkrar spurningar þar sem svörin voru í styttri kantinum. Hann var spurður út í gott gengi gegn belgískum liðum og sagði einfaldlega að sér hefði gengið vel gegn belgískum liðum.

Lokaspurningarnar voru svo mjög óþægilegar: „Muntu sofa einn í kvöld? Uuuuu... Já."

„Þú tekur ekki kærustu með þér heim, þú skoraðir ekki þrennu."

„Rétt, ég skoraði ekki þrjú," svaraði Haaland.

Spyrjandinn var að reyna koma inn á það að Haaland hefur líkt boltanum, sem leikmaður fær til eignar eftir að hafa skorað þrennu, við kærustu í viðtali fyrr á ferlinum. Það myndaði mjög óþægilega stemningu og viðbrögð þeirra sem voru í setti CBS, þ.a.m. Jamie Carragher, má sjá ásamt viðtalinu hér að neðan.



Viðtal við Haaland eftir þrennu með Salzburg:

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner