Fotbolti.net
28.09.26 - 11:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Steypustöðin

Sterkasta lið 20. umferðar - Halda sér uppi þvert á allar spár

Valur er á botninum þegar einn leikur er eftir.

Valur er á botninum þegar einn leikur er eftir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það eru þrjár umferðir eftir í efri hluta Bestu deildar kvenna og ein eftir í neðri hlutanum.

Líklega stærsti leikur tímabilsins til þessa fór fram á Hlíðarenda síðasta föstudag þegar Valur tók á móti Víkingi. Bæði þessi lið eru í mikilli fallhættu fyrir lokaleik en þau skildu jöfn, 1-1. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir var öflug í liði Víkinga en Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir lék vel fyrir Val.

Bæði þessi lið eru á fallsvæðinu fyrir lokaumferðina.
Sterkasta lið 19. umferðar - Skildu Reykjavíkurstórveldin eftir
TENGT EFNI

Sterkasta lið 19. umferðar - Skildu Reykjavíkurstórveldin eftir



Fram tryggði veru sína í deildinni. Það spáðu allir Frömurum falli fyrir tímabilið en þær hafa gert vel og tryggðu áframhaldandi sæti sitt í deildinni með sigri á Akureyri gegn Þór/KA. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir hefur leikið mjög vel með Fram í sumar og þarna átti Brookelyn Paige Entz líka góðan leik.

Breiðablik vann endurkomusigur á ÍBV þar sem Guðný Geirsdóttir var maður leiksins en Blikar söfnuðu saman næstum því 6 í xG í þessum leik. Agla María Albertsdóttir var best í liði Blika og er í sterkasta liðinu í níunda sinn í sumar.

Blikar eru í kjörstöðu þar sem FH missteig sig gegn Grindavík/Njarðvík, 3-2. Emma Nicole Phillips og Tinna Hrönn Einarsdóttir fóru fyrir liði Grindavík/Njarðvíkur í þessum leik. Gylfi Tryggvason gerði mjög sterk tilkall að vera þjálfari umferðarinnar en það fellur í hlut Antons Inga, þjálfara Fram, þar sem þær tryggðu sæti sitt í deildinni með frábærum sigri.

Þá vann Þróttur þægilegan 5-1 sigur á Stjörnunni í efri hlutanum. Hin 16 ára gamla Bríet Fjóla Bjarnadóttir setti þrennu og var auðvitað maður leiksins. Sæunn Björnsdóttir átti líka góðan leik fyrir Þróttara sem og auðvitað Katie Cousins.
Fram tryggði sæti sitt í Bestu deildinni.

Fram tryggði sæti sitt í Bestu deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðný átti stórleik í marki ÍBV.

Guðný átti stórleik í marki ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðvörðurinn Emma Nicole Phillips er markahæsti leikmaðurinn hjá Grindavík/Njarðvík í sumar.

Miðvörðurinn Emma Nicole Phillips er markahæsti leikmaðurinn hjá Grindavík/Njarðvík í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sæunn Björnsdóttir.

Sæunn Björnsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.