Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 04. desember 2020 15:30
Magnús Már Einarsson
Sænsk og norsk félög vilja fá Valgeir Lunddal
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Félög í Noregi og Svíþjóð hafa sýnt áhuga á að fá Valgeir Lunddal Friðriksson í sínar raðir frá Val samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Norska félagið Stromsgödset reyndi að fá Valgeir í sínar raðir í sumar en Valur hafnaði því.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa fleiri félög sýnt Valgeiri áhuga.

Valgeir kom til Vals frá Fjölni í sumar en hann fór á kostum í vinstri bakverðinum þegar Valsmenn urðu Íslandsmeistarar í sumar.

Hinn 19 ára gamli Valgeir var valinn efnilegasti leikmaður Pepsi Max-deildarinnar hjá Fótbolta.net.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner