Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 04. desember 2022 20:37
Brynjar Ingi Erluson
Alexandra lagði upp í sigri Fiorentina - Guðný í tapliði
Alexandra Jóhannsdóttir lagði upp þriðja mark Fiorentina
Alexandra Jóhannsdóttir lagði upp þriðja mark Fiorentina
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir og stöllur hennar í ítalska liðinu Fiorentina unnu Como, 3-2, í Seríu A í dag en Alexandra lagði upp þriðja mark liðsins í leiknum.

Alexandra var í byrjunarliði Fiorentina sem átti glæsilega byrjun gegn Come. Fiorentina komst í 2-0 þökk sé mörkum frá Miriam Longo og Bernadet Kajan.

Í byrjun síðari hálfleiks lagði svo Alexandra upp þriðja markið fyrir Longo.

Alexandra fór af velli á 84. mínútu leiksins í stöðunni 3-1. Como minnkaði muninn um eitt mark tveimur mínútum eftir að Alexandra fór af velli en lengra komst Como ekki. Fiorentina er í 3. sæti með 22 stig.

Guðný Árnadóttir spilaði allan leikinn í vörn Milan sem tapaði fyrir Roma, 2-0. Milan er í 5. sæti með 16 stig.

Dagný Brynjarsdóttir var þá eins og vanalega með fyrirliðabandið hjá West Ham sem tapaði fyrir Liverpool, 2-0, í WSL-deildinni í dag en West Ham situr í 6. sæti með 12 stig.
Athugasemdir
banner
banner