Ítalska félagið Roma er í viðræðum við franska félagið Lille um tyrkneska landsliðsmanninn Zeki Celik en Sky Sports greinir frá þessu.
Celik er 23 ára gamall hægri bakvörður en hann er samningsbundinn Lille til 2023.
Hann hefur spilað fimmtán leiki í öllum keppnum með Lille á tímabilinu og er metinn á 15 milljónir evra.
Samkvæmt Sky er Roma í viðræðum við Lille um að kaupa hann í glugganum.
Celik á þá átján landsleiki og tvö mörk að baki fyrir tyrkneska landsliðið.
Athugasemdir