Chelsea er marki yfir gegn Tottenham í undan úrslitum deildarbikarsins en Kai Havertz skoraði markið eftir slæm mistök hjá Tanganga.
Romelu Lukaku komst í hann krappann á dögunum eftir að hafa gagnrýnt Thomas Tuchel stjóra Chelsea og var settur í skammarkrókinn um helgina gegn Liverpool en er mættur aftur í liðið í kvöld.
Thiago Silva og N'golo Kante eru hinsvegar ekki til taks en Tuchel staðfesti það fyrir leikinn að þeir hafi greinst með Covid-19 veiruna.
„Tveir mikilvægir leikmenn, við fengum þessar upplýsingar í morgun svo þetta er mikil áskorun," sagði Tuchel.
Athugasemdir