Máni segir KA þurfa að fara í endurnýjun - „Hinir eiga ekki eftir að verða betri“

Ívar Arnbro Þórhallsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Máni Pétursson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ívar Arnbro Þórhallsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Máni Pétursson telur að KA eigi að gefa ungum leikmönnum fleiri tækifæri á komandi tímabili. Máni var gestur í ótímabæru spánni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardaginn og segir að Akureyrarliðið verði að hugsa til framtíðar.

TENGT EFNI
Útvarpsþátturinn - Máni í framboði og ótímabæra spáin
„Síðasta tímabil var gott hjá KA, liðið fer ekki á hverju ári í bikarúrslit. Liðið endar í sjöunda sæti og 'vinnur Forsetabikarinn' og fer tvær umferðir áfram í Evrópu. Ég er sammála Hadda í því að þetta var fínt tímabil hjá KA," segir Máni.
„Það sem ég vil sjá hjá KA núna, það verður að gerast, er að liðið fari í endurnýjun. Annars gætu þeir lent í miklum vandræðum. Aldursskiptingin á liðinu er orðin þannig."
Hann vill til að mynda að Ívar Arnbro Þórhallsson fái tækifæri til að sýna sig en hann verður átján ára í maí.
„Þeir eru alltaf með sama höfuðverkinn sem er markmannsstaðan, þeir eru með sveitastrák sem heitir Ívar og hann er bara hrikalega góður markvörður. Hann er svakalega góður. Ég veit að hann er ungur en ég skil ekki af hverju hann er ekki að spila alla undirbúningsleikina núna. Af hverju er verið að halda hinu gangandi? Hinir tveir markverðirnir eiga ekki eftir að verða neitt betri," segir Máni.
Steinþór Már Auðunsson og Kristijan Jajalo vörðu mark KA í fyrra en Ívar fékk síðasta leik tímabilsins og hélt hreinu í 1-0 sigri gegn HK.
„Valdimar Logi (Sævarsson), sonur framkvæmdastjórans, það er mjög góður leikmaður og fær vonandi fleiri mínútur. KA-menn eru með það gott lið að þeir þurfa ekki að lenda í fallbaráttunni en geta 'drillað' ungu strákunum inn á meðan. Ef þeir ætla að fara í tímabil eins og í fyrra og reyna við Evrópusæti og svona þá held ég það muni kosta þá í framtíðinni."