Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 05. apríl 2021 17:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leikmenn Spurs gáttaðir á ummælum Mourinho um Alderweireld
Æfði á fimmtudag
Mynd: Getty Images
Leikmenn Tottenham og starfsfólk félgsins er gáttað á ummælum Jose Mourinho varðandi hvers vegna Toby Alderweireld var ekki með gegn Newcastle í gær.

Mourinho sagði að Toby og Serge Aurier hefðu ekki getað æft með liðinu fyrr en á laugardag þar sem niðurstöður covid-testa voru ekki ljósar fyrr.

Félagið hafði þó birt myndir af Alderweireld á æfingu liðsins á fimmtudag. Skrítin ummæli.

Hvorki Aurier né Alderweireld voru á bekknum í gær en ljóst er að þessi ummæli Mourinho halda engu vatni.

Samkvæmt heimildum Mail vöktu þessu ummæli Mourinho furðu meðal leikmanna og starfsfólks félagsins.

Nú fara einhverjar kenningar á flug og er talað um ósætti milli Mourinho og Alderweireld. Í slúðurpakkanum í mogun var talað um að Club Brugge hefði boðið Belganum samning.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner