Fotbolti.net
05.04.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Eiður Orri aftur lánaður í Hött/Hugin (Staðfest)

Eiður Orri (t.h.) mun spila með Hetti/Hugin í sumar

Eiður Orri (t.h.) mun spila með Hetti/Hugin í sumar

Canon

Mynd: Njarðvík

Eiður Orri Ragnarsson spilar með Hetti/Hugin á láni frá Njarðvík á komandi tímabili.
Eiður er fæddur árið 2004 og kemur frá Vopnafirði en hann samdi við Njarðvík á síðasta ári eftir að hafa spilað fyrir Einherja í 3. deildinni.

Hann lék 7 leiki með Njarðvíkingum í 2. deildinni á síðasta ári áður en hann var lánaður í Hött/Hugin. Þar spilaði hann 10 leiki og skoraði 2 mörk.

Eiður framlengdi við Njarðvík á dögunum og var síðan í kjölfarið lánaður aftur í Hött/Hugin og mun því spila áfram með liðinu í 2. deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.