Íslandsmeistararnir lána Evu í HK (Staðfest)

Mynd: HK

Mynd: HK

Eva Stefánsdóttir leikmaður Íslandsmeistara Vals hefur verið lánuð í HK fyrir komandi tímabil og mun hún leika í treyju númer 7. Þetta kemur fram á heimasíðu HK, hk.is.
Eva á að baki unglingalandsleiki með U17-U19 ára landsliðum Íslands og 21 leik í meistaraflokki með Val og KH. Hún leikur yfirleitt á kantinum en getur einnig leyst stöðu framherja.
Hún er gríðarlega efnileg og mun styrkja HK liðið fyrir átökin í Lengjudeildinni í sumar.
„Við í HK erum mjög ánægð með að Eva valdi að koma til liðs við félagið og sýnir það enn og sannar hversu gott starf er unnið í kringum kvennalið félagsins okkar!" segir í fréttinni á heimasíðu félagsins.