Teemu Pukki yfirgefur Norwich eftir tímabilið (Staðfest)

Teemu Pukki.

Mynd: Getty Images

Teemu Pukki.

Mynd: Getty Images
Finnski sóknarmaðurinn Teemu Pukki mun yfirgefa Norwich að þessu tímabili loknu.
Samningur hans rennur út í sumar og verður sá samningur ekki framlengdur.

Pukki, sem er 33 ára gamall, gekk í raðir Norwich frá Bröndby í Danmörku árið 2018. Hann hefur reynst frábær markaskorari fyrir Norwich, og þá sérstaklega í næst efstu deild á Englandi.
Pukki gerði 30 mörk í 46 deildarleikjum á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu og hjálpaði Norwich þá að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina. Hann hjálpaði Norwich aftur upp fyrir tveimur árum með því að skora 26 mörk í 42 leikjum.
Núna er komið að leiðarlokum og mun þessi skemmtilegi sóknarmaður takast á við nýja áskorun frá og með sumrinu.