Tómas Leó í Víði (Staðfest)

Tómas Leó hér í leik með Haukum.

Mynd: Hulda Margrét

Tómas Leó hér í leik með Haukum.

Mynd: Hulda Margrét
Víði Garði hefur borist mikill liðsstyrkur fyrir 3. deild karla því sóknarmaðurinn Tómas Leó Ásgeirsson er genginn í raðir félagsins frá Grindavík.
Tómas Leó spilaði í fyrra 16 leiki með Grindavík í Lengjudeildinni og skoraði í þeim fimm mörk.
Sóknarmaðurinn, sem er fæddur árið 1998, spilaði þar áður með Haukum í 2. deild og raðaði inn mörkum. Hann gerði alls 27 mörk í 40 deildarleikjum á tveimur tímabilum með Haukum.
Tómas Leó er uppalinn í Sindra og spilaði þar sín fyrstu ár í meistaraflokksfótbolta.
Hann mun spila með Víði í sumar en liðið hefur leik í 3. deild gegn Hvíta riddaranum eftir akkúrat mánuð.
Á síðustu leiktíð hafnaði Víðir í fjórða sæti 3. deildar og stefnir félagið eflaust á það að komast upp í sumar.