Valur fær einnig bandarískan markvörð (Staðfest)

Valur varð bæði Íslands- og bikarmeistari á síðustu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur samdi ekki bara við einn markvörð í dag, félagið er búið að semja við tvo markverði.
Birta Guðlaugsdóttir gekk fyrr í dag í raðir Vals frá Stjörnunni. Birta er 22 ára markvörður sem hefur verið hjá Stjörnunni frá því hún kom frá Ólafsvík fyrir tímabilið 2018.
Valur hefur einnig samið við bandaríska markvörðinn Kelly
Rowswell, sem er fædd árið 1998.
Rowswell var síðast á mála hjá Orlando Pride í bandarísku atvinnumannadeildinni en kom ekki við sögu í neinum leik þar. Hún hefur einnig verið á mála hjá Issy í Frakklandi.
Rowswell kemur til með að fylla í skarðið fyrir landsliðsmarkvörðinn Söndru Sigurðardóttur sem lagði hanskana á hilluna fyrir um mánuði síðan. U19 landsliðsmarkvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir er einnig á mála hjá félaginu, sem og Birta eins og minnst á var hér að ofan.

NEWS: Orlando Pride Signs Kelly Rowswell as Goalkeeper Replacement#PrideOfOrlando
— Orlando Pride (@ORLPride) September 8, 2022