Arna-Björnar lið Guðbjargar Gunnarsdóttur tapaði 0-2 gegn Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni í dag. Ingibjörg Siguðardóttir var í byrjunarliði Valerenga sem vann 2-1 sigur gegn Kolbotn.
Guðbjörg sat á varamannabekk Arna-Björnar en liðið tapaði gegn Rosenborg á útivelli 0-2. Arna-Björnar er á botni deildarinnar með 0 stig eftir fyrstu þrjá leikina.
Valerenga lenti undir í fyrri hálfleik en snéri blaðinu sér í vil í þeim seinni. Eins og áður segir var Ingibjörg Sigurðardóttir í byrjunarliðinu og spilaði allan leikinn. Hin efnilega Amanda Andradóttir byrjaði á varamannabekknum en kom inná í uppbótartíma.
Valerenga er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.
Athugasemdir