Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. júní 2021 20:02
Victor Pálsson
Thiago Silva framlengdi við Chelsea
Mynd: EPA
Thiago Silva, leikmaður Chelsea, hefur framlengt samning sinn við enska félagið til ársins 2022.

Þetta staðfesti Chelsea í gær en Olivier Giroud skrifaði einnig undir nýjan eins árs samning eins og greint var frá.

Silva er 36 ára gamall varnarmaður en hann spilaði 34 leiki fyrir Chelsea í öllum keppnum á tímabilinu.

Silva vann einnig Meistaradeildina í fyrsta sinn á ferlinum eftir að hafa komið frá Paris Saint-Germain í fyrra.

Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, hefur einnig skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner