Bæjarstjórinn í La Línea de la Concepción hefur hætt við að hýsa vináttulandsleik Síle gegn Austur-Kongó sem átti að fara fram í næstu viku. Hætt er við leikinn af ótta við nýja ebólufaraldurinn í Kongó.
Leikurinn átti að fara fram 9. júní en Juan Franco, bæjarstjórinn í La Línea de la Concepción sem er einn af syðstu bæjum Spánar, hefur ákveðið að fylgja ráðleggingum heilbrigðisyfirvalda og fá þjóðirnar því ekki að mætast í bænum.
Landslið Austur-Kongó er í Belgíu þessa dagana og gerði markalaust jafntefli við Danmörku í vináttulandsleik í gær.
Allir landsliðsmenn Kongó leika fjarri heimalandinu og hefur enginn þeirra komið við í Kongó á síðustu vikum. Þeir eru því lausir við ebólufaraldurinn, en einhver hluti starfsmanna landsliðsins hefur haft viðkomu í Kongó og þar að auki eru einhverjir stuðningsmenn sem koma frá Kongó til að fylgja landsliðinu. Það er því litlar líkur á að smitaður einstaklingur sé í kringum landsliðið þessa dagana.
Bandarísk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að hleypa engum einstaklingum inn í landið sem hafa verið í Kongó síðustu þrjár vikur fyrir flug. Hluti af starfsteymi Kongó mun því ekki geta ferðast með landsliðinu.
Nýi ebólufaraldurinn í Kongó er stórhættluegur þar sem ekki er til bóluefni við þessari stökkbreytingu veirunnar. Heilbrigðisyfirvöld reikna með að það taki allt að níu mánuði að þróa bóluefni.
Austur-Kongó er á leið á heimsmeistaramótið í fyrsta sinn síðan 1974 og mun dvelja í Houston fyrir fyrsta leikinn sinn sem verður gegn evrópska stórveldinu Portúgal á þjóðhátíðardag Íslendinga, 17. júní.
Liðið ferðast svo til Mexíkó til að mæta Kólumbíu áður en það snýr aftur til Bandaríkjanna til að spila við Úsbekistan í Atlanta.
21.05.2026 16:04
Wan-Bissaka með Kongó á HM
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


