Hrafn Guðmundsson, ungur leikmaður Njarðvíkur, stóð sig frábærlega í 5-1 sigri á heimavelli gegn ÍR í Lengjudeildinni fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: Njarðvík 5 - 1 ÍR
Hrafn skoraði þriðja mark leiksins til að taka forystuna fyrir Njarðvík á 44. mínútu og gaf nokkrar stoðsendingar.
„Við vorum geggjaðir í þessum leik allar 90 mínúturnar þó við höfum byrjað á að fá mark á okkur. Við sýndum karakter með því að svara strax og erum mjög sáttir," sagði Hrafn.
„Það vantaði orku í okkur í síðasta leik en við fundum hana í dag og vorum frábærir. Mér líður mjög vel og ég er sáttur með sjálfan mig í síðustu tveimur leikjum. Ég þarf að halda áfram að skora og leggja upp."
Njarðvík er með 11 stig eftir 8 umferðir og heimsækir Völsung í næstu umferð.























