Leiknir Reykjavík heimsótti Ægi í Þorlákshöfn fyrr í kvöld í 8. umferð Lengjudeildar karla. Leiknum lauk með 3–0 sigri gestanna.
Nemanja Pjevic, aðstoðarþjálfari Leiknis, stýrði liðinu í fjarveru Brynjars Björns, sem sat af sér leikbann eftir rautt spjald gegn HK í síðustu umferð.
Lestu um leikinn: Ægir 0 - 3 Leiknir R.
Leikurinn var í járnum framan af og lítið sem ekkert gerðist en síðan tóku Leiknismenn yfir á níu mínútna kafla í seinni hálfleik og skoruðu þrjú mörk.
„Það er svolítið þannig að þegar maður bíður eftir strætó, þá koma þeir allt í einu þrír í einu. Það breyttist í raun ekki neitt, við komum bara inn í hálfleik og töluðum um að gera meira af því sem við höfðum æft og lagt upp með. Ægisliðið er þannig að þeir eru mjög flottir og þéttir til baka. Þegar fyrsta markið slefaði inn opnuðust þeir aðeins og þá, eins og þú sást, opnaðist allt og tvö mörk til viðbótar fylgdu í kjölfarið.“ sagði Nemanja við Fótbolti.net eftir leik.
Leiknismenn mættu mun sterkari og tilbúnari til leiks í seinni hálfleik en Ægir.
„Það er alveg kafli þarna á milli, frá tíundu mínútu og fram að þeirri sjötugustu, þegar við skorum þessi þrjú mörk, þar sem við erum aðeins of mikið í bara einhverju. Við þurfum að laga það en þetta er mjög jákvætt.“























