Enrique Riquelme er í harðri kosningabaráttu við Florentino Pérez um forsetastólinn hjá Real Madrid og eru þeir að keppast við að lofa ýmsum umbótum á liðinu.
Riquelme hefur þegar sagst ætla að reyna við Rodri og Erling Haaland, leikmenn Manchester City, og uppskar mikla gagnrýni fyrir. Hann talaði einnig um að ætla að ráða inn heimsklassa þjálfara til að stýra liðinu en vildi ekki nefna nein nöfn, ekki fyrr en í dag.
„Þjálfarinn sem við viljum fyrir Real Madrid verkefnið er Jürgen Klopp," sagði Riquelme. „Ef við náum kjöri þá mun Raúl setja sig í samband við Klopp strax á mánudaginn."
Klopp var síðast aðalþjálfari Liverpool við frábæran orðstír en starfar í dag sem partur af Red Bull samsteypunni.
04.06.2026 06:34
Riquelme ætlar að krækja í Haaland og Rodri


