PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 18:12
Ívan Guðjón Baldursson
Segir að Bayern sé með samkomulag við Ngumoha
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Þýski fótboltafréttamaðurinn Florian Plettenberg greinir frá því að FC Bayern sé búið að ná samkomulagi við táninginn Rio Ngumoha sem er samningsbundinn Liverpool næstu tvö árin.

Þýskalandsmeistararnir hafa miklar mætur á Ngumoha sem er aðeins 17 ára gamall en hefur þrátt fyrir ungan aldur sýnt frábæra takta með aðalliði Liverpool.

Plettenberg greinir frá því að Bayern hafi náð samkomulagi við Ngumoha um persónuleg kjör í lok maí en viðræður við Liverpool um kaupverð hafa siglt í strand.

Bayern vill kaupa Ngumoha sem arftaka fyrir Luis Díaz á vinstri kantinum. Vincent Kompany þjálfari hefur miklar mætur á táningnum og ræddi við hann persónulega til að sannfæra hann um að samþykkja samning.

Liverpool er ekki talið hafa neinn áhuga á því að selja Ngumoha.

   05.06.2026 16:10
Bayern íhugar að kaupa ungstirni Liverpool

Slapp
banner
banner