Fotbolti.net
05.07.13 - 19:56
Brynjar Ingi Erluson

Dragan Stojanovic hættur með Völsung (Staðfest)

Dragan Stojanovic

Dragan Stojanovic

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjórn knattspyrnudeildar Völsungs hefur komist að samkomulagi um starfslok við Dragan Stojanovic, þjálfara liðsins, en þetta kemur fram á 640.is.
Dragan hefur þjálfað Völsung síðustu tvö keppnistímabil, en hann kom liðinu upp úr 2. deild á síðustu leiktíð.

Liðinu hefur gengið afar illa í sumar og hefur ekki tekist að vinna leik, en liðið er einungis með tvö stig eftir níu umferðir.

Fram kemur á 640.is að stjórn félagsins þakkar Dragan fyrir hans störf í þágu félagsins og óskar honum velfarnaðar í þeim störfum sem hann kemur til með að taka sér fyrir hendur.

Liðið tapaði fyrir KA í síðasta leik með tveimur mörkum gegn engu, en svo virðist sem að það hafi fyllt mælinn hjá stjórn félagsins.

Hann er annar þjálfarinn í fyrstu deildinni sem er látinn fara í sumar, en Páll Einarsson var látinn taka poka sinn hjá Þrótturum á dögunum.

Heimild: 640.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.