Fotbolti.net
05.07.13 - 22:37
Brynjar Ingi Erluson

Marco van Ginkel til Chelsea (Staðfest)

Marco van Ginkel til Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur fest kaup á hollenska miðjumanninum Marco van Ginkel frá Vitesse, en þetta kom fram á heimasíðu liðsins í dag.
Van Ginkel, sem er 20 ára gamall, gerði fimm ára samning við Chelsea í dag, en talið er að hann kosti enska félagið um 8 milljónir punda.

Þessi hollenski miðjumaður gerði góða hluti með U21 árs landsliði Hollendinga á Evrópumótinu sem fór fram í Ísrael á dögunum, en liðið komst alla leið í undanúrslit mótsins.

Van Ginkel er annar leikmaðurinn sem Chelsea fær til sín í sumar, en Andre Schurrle kom frá Bayer Leverkusen.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.