Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 05. júlí 2021 18:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Víkings og ÍA: Wout Droste og Helgi byrja
Wout Droste (í bláu) byrjar sinn fyrsta leik í dag.
Wout Droste (í bláu) byrjar sinn fyrsta leik í dag.
Mynd: EPA
Víkingur og ÍA mætast klukkan 19:15 í elleftu umferð Pepsi Max-deildar karla.

Liðin mættust í 2. umferð mótsins og endaði sá leikur með 1-1 jafntefli.

ÍA gerði 2-2 jafntefli gegn Keflavík í síðustu umferð en Víkingur tapaði sínum fyrsta leik þegar liðið fór í heimsókn í Breiðholtið.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum!

Tvær breytingar eru á liði Víkings frá leiknum gegn Leikni. Helgi Guðjónsson og Viktor Örlygur Andrason koma inn. Halldór Jón Sigurður Þórðarson tekur sér sæti á bekknum en Kwame Quee er ekki í hópnum.

Einnig eru tvær breytingar á liði Skagamanna. Wout Droste, sem gekk í raðir ÍA á dögunum og Sindri Snær Magnússon koma inn í liðið. Hallur Flosason er ekki með í dag og Brynjar Snær Pálsson tekur sér sæti á bekknum.

Byrjunarlið Víkings:
16. Þórður Ingason (m)
7. Erlingur Agnarsson
9. Helgi Guðjónsson
10. Pablo Punyed
12. Halldór Smári Sigurðsson
13. Viktor Örlygur Andrason
17. Atli Barkarson
20. Júlíus Magnússon
21. Kári Árnason (f)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen

Byrjunarlið ÍA:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Óttar Bjarni Guðmundsson (f)
5. Wout Droste
6. Jón Gísli Eyland Gíslason
7. Sindri Snær Magnússon
9. Viktor Jónsson
17. Gísli Laxdal Unnarsson
18. Elias Tamburini
19. Ísak Snær Þorvaldsson
21. Morten Beck Guldsmed
44. Alex Davey

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum!
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner