Norwich er búið að tryggja sér enska varnarmanninn Ben Gibson að láni út tímabilið.
Gibson verður líklega mikilvægur hlekkur í liði Norwich sem féll niður í Championship deildina á síðustu leiktíð.
Gibson kemur að láni frá Burnley en þessi 27 ára gamli varnarmaður var keyptur fyrir metfé í ágúst 2018, eða 15 milljónir punda.
Hann hefur alls ekki staðist væntingar hjá Burnley og hefur í heildina spilað sex leiki frá komu sinni til félagsins. Þar áður var hann algjör lykilmaður í liði Middlesbrough.
𝗖𝗲𝗻𝘁𝗿𝗲-𝗯𝗮𝗰𝗸 𝗮𝗻𝗻𝗼𝘂𝗻𝗰𝗲𝗱 👍 pic.twitter.com/yxK3PXBDV8
— Norwich City FC (@NorwichCityFC) September 4, 2020
Athugasemdir