Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 05. september 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Karnezis til Lille (Staðfest) - Fær treyju númer 1
Mynd: Getty Images
Franska félagið Lille er búið að staðfesta kaup á gríska markverðinum Orestis Karnezis sem gengur í raðir félagsins frá Napoli.

Karnezis kemur sem partur af félagaskiptum Victor Osimhen til Napoli. Lille fær Karnezis og nokkra lykilmenn úr unglingaliði Napoli sem part af kaupverðinu.

Karnezis er 35 ára gamall og fær treyju númer 1 hjá Lille en verður væntanlega varaskeifa fyrir Mike Maignan, sem var eftirsóttur af Chelsea þar til fyrir skömmu.

Samkvæmt vefsíðu Transfermarkt eru félagaskipti Karnezis metin á 5 milljónir evra, þó markvörðurinn sjálfur sé aðeins metinn á hálfa milljón. Ekki er greint frá samningslengdinni.

Karnezis á 49 leiki að baki fyrir gríska landsliðið og hefur spilað fyrir Panathinaikos, Udinese, Granada og Watford á ferlinum.


Athugasemdir
banner
banner
banner