Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 05. september 2022 06:00
Hafliði Breiðfjörð
13 milljónir fyrir 13 rétta á enska getraunaseðilinn
Mynd: 1X2

Íslenskur tippari var einn af 13 tippurum sem var með alla 13 leikina rétta á Enska getraunaseðlinum á laugardag og fær hver þeirra 13 milljónir króna í sinn hlut. Hinir tólf tippararnir koma frá Svíþjóð.


Auk þess var tipparinn með 5 raðir með 12 réttum, 37 raðir með 11 réttum og 186 raðir með 10 réttum og fær hann 1 milljón króna til viðbótar í aukavinninga eða samtals 14 milljónir króna.

Tipparinn styður við bakið á Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík (ÍFR), en það var einmitt stuðningsmaður ÍFR sem fékk 13 rétta á síðasta Miðvikudagsseðil. Þess má geta að getraunanúmer ÍFR er 121 fyrir þá sem vilja styðja við bakið á félaginu.


Athugasemdir
banner
banner
banner