Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 05. september 2022 19:53
Brynjar Ingi Erluson
Henderson verður frá í þrjár vikur
Jordan Henderson missir af næstu leikjum Liverpool
Jordan Henderson missir af næstu leikjum Liverpool
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, verður ekki með liðinu næstu þrjár vikur vegna meiðsla aftan í læri en þetta kemur fram í grein Athletic í dag.

Henderson meiddist í 2-1 sigri Liverpool á Newcastle United í síðustu viku og þurfti að fara af velli þegar tuttugu mínútur voru eftir af leiknum.

Hann var ekki með Liverpool í nágrannaslagnum gegn Everton um helgina en James Pearce hjá Athletic segir nú frá því að hann verði frá næstu þrjár vikurnar.

Naby Keita, Alex Oxlade-Chamberlain og Thiago hafa verið á meiðlaistanum síðustu vikur en Liverpool fékk að vísu góðar fréttir í dag.

Thiago snéri aftur á æfingu og gæti átt möguleika á því að spila með liðinu gegn Wolves í úrvalsdeildinni næstu helgi. Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur ekki útilokað þann möguleika að hann ferðist með liðinu til Napoli, en liðið spilar við liðið í Meistaradeildinni á miðvikudag.
Athugasemdir
banner
banner