Fotbolti.net
05.09.23 - 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Abde endaði hjá Betis (Staðfest) - Barca með endurkaupsrétt

Abde endaði hjá Betis (Staðfest) - Barca með endurkaupsrétt
Canon

Mynd: EPA

Real Betis borgaði tæpar 10 milljónir evra til að kaupa Abde Ezzalzouli frá Barcelona í ágúst og er ungstirnið búið að gera fimm ára samning við félagið.

Barca hefur þó miklar mætur á Abde, sem vill fá spiltíma og neitar að vera lánaður til mismunandi félagsliða á hverju tímabili.

Abde er 21 árs kantmaður sem leikur fyrir landslið Marokkó og fór með á HM í fyrra.

Hann hefur komið við sögu í fjórtán leikjum með Barca en gerði flotta hluti á láni hjá Osasuna á síðustu leiktíð. Það vakti áhuga margra félaga, meðal annars Aston Villa og Bayer Leverkusen, en Abde vildi spila áfram í spænska boltanum.

Barca getur keypt Abde til baka með sérstöku 20 milljón evru endurkaupsákvæði sem var sett í kaupsamninginn, en ákvæðið rennur út eftir sumarið 2025.

Ef Barca kaupir Abde ekki til baka þá heldur félagið 50% endursölurétti á honum.

Abde endaði hjá Betis (Staðfest) - Barca með endurkaupsrétt
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.