Schmeichel kominn til Anderlecht (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Belgíska stórveldið RSC Anderlecht er búið að krækja í danska landsliðsmarkvörðinn Kasper Schmeichel á frjálsri sölu eftir að hann samdi við OGC Nice um starfslok.
Schmeichel er 36 ára gamall og vann sér það helst til frægðar að hampa enska úrvalsdeildartitlinum sem leikmaður Leicester City.
Hann spilaði 479 leiki á ellefu árum hjá Leicester áður en hann skipti til Nice í fyrra, en Marcin Bulka sem var varamarkvörður liðsins á síðustu leiktíð tekur við keflinu.
Schmeichel á 93 landsleiki fyrir Danmörku og er enn aðalmarkvörður landsliðsins þrátt fyrir hækkandi aldur. Hjá Anderlecht mun hann berjast við Maxime Dupé um byrjunarliðssæti. Dupe er þrítugur Frakki sem kom á frjálsri sölu frá Toulouse fyrr í sumar.
Schmeichel gerir eins árs samning við Anderlecht með möguleika á auka ári.




