Fotbolti.net
05.10.16 - 18:12
Magnús Már Einarsson

Rúnar Alex: 100% það erfiðasta sem ég hef gert

Auglýsing
Rúnar Alex í leiknum í dag.

Rúnar Alex í leiknum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var djók,\" sagði Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður U21 árs landsliðsins, eftir 2-0 sigur á Skotum í dag. Leikurinn fór fram í miklu roki og rigningu á Víkingsvelli.

„Þetta er 100% það erfiðasta sem ég hef gert á ævinni. Þetta er by far versta veður sem ég hef spilað í og vonandi það versta sem ég kem til með að spila í.\"
„Í hálfleik fór ég auka stuttbuxur, tvær auka innanundir buxur, tvo innanundir boli. Mér var ógeðslega kalt. Ég væri ekki svona glaður ef ég hefði tapað eða gert jafntefli í þessu veðri. Þá hefði ég frekar viljað fresta þessum leik.\"

Rúnar Alex fékk á sig vítaspyrnu skömmu eftir að Ísland komst í 1-0. Alex varði spyrnuna glæsilega frá Oliver Mcburnie.

„Ég hugsaði að ég væri að fara að verja. Mér fannst stemningin í kringum þetta vera þannig að ég væri að fara að verja.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni. Þar skoðar Rúnar Alex hvað raunhæft er að fá marga áhorfendur á völlinn á þriðjudag þegar U21 liðið mætir Úkraínu á Laugardalsvelli. Sigur þar tryggir sæti á EM á næsta ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.