Fotbolti.net
05.10.19 - 14:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Pochettino: Það var ómögulegt að finna lausnir

Pochettino: Það var ómögulegt að finna lausnir
Canon

Mynd: Getty Images

<a href="https://fotbolti.net/news/05-10-2019/england-connolly-hetja-brighton-algjort-hrun-tottenham" target="_blank">Tottenham steinlá gegn Brighton í hádegisleik</a> dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Neal Maupay kom Brighton yfir og Aaron Connolly skoraði svo tvö mörk til að innsigla sigurinn.

Tottenham hefur verið í miklu veseni undanfarið og markatala vikunnar er 2-10 eftir 2-7 tap gegn Bayern í vikunni.
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, var vonsvikinn í viðtali við BBC eftir leik.

„Meiðsli Hugo Lloris komu sér illa fyrir okkur. Þau komu snemma og að lenda undir og missa fyrirliðann af velli hafði mikil áhrif á liðið. Við reyndum að finna lausnir en tókst það ekki. Þetta er mjög erfitt þessa stundina."

„Eftir fimm og hálft ár í starfi eru þetta langerfiðustu tímarnir. Tilfinningin er slæm þessa stundina en ég vil halda áfram að vinna og hef trú."

„Ég vona að ég taki pressuna á mig og tek hana af leikmönnum. Við verðum að vinna úr þessari stöðu og megum ekki gera lítið úr henni."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.