Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 05. október 2020 20:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Amad Diallo til Manchester United (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur staðfest komu Amad Traore, eða Amad Diallo eins og hann vill láta kalla sig.

Diallo er efnilegur kantmaður sem kemur til Manchester United frá Atalanta á Ítalíu. Hann verður hjá Atalanta þangað til í janúar og fer þá til Man Utd.

Man Utd telur sig vera að fá einn mest spennandi leikmann Ítalíu, en félagið hefur fylgst með honum frá 2016 að sögn Laurie Whitwell, fréttaritara The Athletic.

Man Utd borgar 20 milljónir evra og gæti það hækkað um 21 milljón í framtíðinni, eftir því hvernig leikmanninum vegnar og fleira.

Hinn 18 ára gamli Traore var á leið til Parma á láni áður en Manchester United stökk inn í málið í morgun.


Athugasemdir
banner
banner