Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 05. október 2020 08:04
Magnús Már Einarsson
Ben Godfrey til Everton (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Everton hefur keypt varnarmanninn Ben Godfrey frá Norwich á tuttugu milljónir punda.

Hinn 22 ára gamli Godfrey skrifaði undir fimm ára samning.

„Það er heiður að skrifa undir hjá Everton og vera hluti af svona stóru félagi. Ég er mjög þakklátur fyrir tækifærið og get ekki beðið eftir því að byrja," sagði Godfrey eftir undirskrift.

Hann er fimmti leikmaðurinn sem Everton fær í þessum félagaskiptalgugga á eftir Niels Nkounkou, Allan, James Rodriguez og Abdoulaye Doucoure.

Everton hefur farið frábærlega af stað í ensku úrvalsdeildinni en liðið er á toppnum eftir að hafa unnið alla fjóra leiki sína.



Athugasemdir
banner
banner