Franski varnarmaðurinn Jean-Clair Todibo mun leika fyrir Benfica að láni út tímabilið með 20 milljón evru kaupmöguleika.
Barcelona vildi selja Todibo en varnarmanninum leist ekki nógu vel á Fulham svo hann endaði hjá Benfica. Fulham er að fá Joachim Andersen lánaðan frá Lyon í staðinn.
Todibo er tvítugur miðvörður sem hefur aðeins spilað fimm leiki frá komu sinni til Barcelona í janúar 2019.
Hann varði seinni hluta síðasta tímabils að láni hjá Schalke og spilaði 10 leiki í þýska boltanum.
Portúgalska stórliðið borgar 2 milljónir fyrir lánssamninginn.
Barcelona vill fylla í skarðið með Eric Garcia, efnilegum miðverði Manchester City, sem á eitt ár eftir af samning og er falur fyrir 20 milljónir evra.
Athugasemdir