Portúgalski landsliðsmaðurinn Danilo Pereira mun spila fyrir PSG á lánssamningi út tímabilið.
Frakklandsmeistararnir borga 4 milljónir evra fyrir lánssamninginn og geta svo fest kaup á Pereira fyrir 16 milljónir í viðbót ef þeim lýst á leikmanninn.
Pereira er djúpur miðjumaður sem hefur spilað rúmlega 200 leiki á fimm árum hjá Porto. Auk þess á hann 39 leiki að baki fyrir Evrópumeistara Portúgal.
Pereira, sem er 29 ára gamall, mun berjast við menn á borð við Idrissa Gana Gueye og Ander Herrera um byrjunarliðssæti.
PSG er búið að krækja í Alessandro Florenzi og Moise Kean á lánssamningum í sumar. Þá festi félagið kaup á Mauro Icardi frá Inter og Sergio Rico, markverði Sevilla.
🆕✍️ #WelcometoParis pic.twitter.com/hRsjT3m2XN
— Paris Saint-Germain (@PSG_English) October 5, 2020
Athugasemdir