Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 05. október 2020 17:31
Ívan Guðjón Baldursson
Samúel Kári aftur til Viking (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samúel Kári Friðjónsson er genginn aftur í raðir Viking í efstu deild norska boltans. Hann er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við félagið eftir dvöl hjá SC Paderborn í Þýskalandi.

Samúel Kári lék fyrir Viking að láni í fyrra og stóð sig svo vel að Paderborn ákvað að krækja í hann frá Vålerenga.

Hann kom aðeins við sögu í fimm leikjum í þýska boltanum er Paderborn féll á sínu fyrsta tímabili í efstu deild.

Þjálfara breytingar urðu hjá Paderborn í sumar og breytingar á hópnum. Samúel hefur ekki verið í myndinni í byrjun tímabils.

Samúel er 24 ára gamall og á hann 8 A-landsleiki að baki. Hann var í hópnum gegn Englandi og Belgíu í síðasta mánuði.

Hann ólst upp hjá Keflavík og getur bæði spilað sem miðjumaður og hægri bakvörður.

Hjá Viking hittir hann miðvörðinn Axel Óskar Andrésson sem er með fast sæti í byrjunarliðinu. Þeir komu báðir upp í gegnum unglingaakademíuna hjá Reading.


Athugasemdir
banner
banner