05.10.26 - 17:59
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið kvöldsins: Lykilmenn hvíldir

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Landsleikjaglugginn fer að loka og eru spennandi landsleikir á dagskrá í kvöld. Hér fyrir neðan má sjá byrjunarlið kvöldsins.
Stórveldi Frakklands tekur á móti Belgíu í nágrannaslag og teflir Zinedine Zidane fram tilraunakenndu byrjunarliði í ljósi mikilla meiðslavandræða.
Esteban Lepaul leiðir sóknarlínuna og þá fær Andy Diouf tækifæri í byrjunarliðinu á meðan hinn bráðefnilegi Maghnes Akliouche byrjar á miðjunni. Leny Yoro byrjar í hjarta varnarinnar. Zidane hvílir marga lykilmenn alveg eins og Mark van Bommel landsliðsþjálfari Belgíu. Kevin De Bruyne og Youri Tielemans eru í leikbanni og þá fær Jérémy Doku verðskuldaða hvíld.
Nágrannaþjóðirnar eigast við í toppslag riðilsins. Frakkar tróna á toppinum sem stendur með 7 stig eftir 3 umferðir, einu stigi meira en Belgar. Frakkar unnu fyrri leik liðanna naumlega í Belgíu.
Roberto Mancini gerir mikið af breytingum á byrjunarliði Ítalíu sem náði fræknu jafntefli á Stade de France á dögunum. Ítalir taka á móti Tyrkjum sem gera einnig mikið af breytingum á sínu byrjunarliði til að hvíla lykilmenn.
Þessir leikir eru í A-deildinni en það er einnig keppt í B-deildinni. Þar er Alexander Isak ekki í leikmannahópi Svía gegn Rúmeníu en Viktor Gyökeres byrjar í fremstu víglínu.
Bosnía og Pólland eigast þá einnig við en Edin Dzeko og Robert Lewandowski eru ekki með.
Frakkland: Restes, Kounde, Yoro, Lacroix, Camavinga, Diouf, Kone, Akliouche, Dembele, Barcola, Lepaul
Belgía: Vandevoordt, Castagne, Ngoy, Mechele, Seys, Raskin, Lavia, Vanaken, Lukebakio, Moreira, Lukaku
Ítalía: Donnarumma, Di Lorenzo, Mancini, Bastoni, Ruggeri, Romano, Barella, Doumbia, Vergara, Maldini, Scamacca
Tyrkland: Cakir, Celik, Elmali, Kabak, Bardakci, Kadioglu, Akgun, Yuksek, Ozcan, Kahveci, Simsir