05.10.26 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rojo gaf eftir peninga til að klára ferilinn heima

Marcos Rojo.

Mynd: EPA

Rojo lék áður fyrir Manchester United.

Mynd: Manchester United

Marcos Rojo.

Mynd: EPA
Marcos Rojo er á leið aftur til uppeldisfélags síns Estudiantes eftir að félagið náði samkomulagi við Racing Club um kaup á varnarmanninum.
Rojo, sem er 36 ára, hefur þrýst mjög á um félagaskiptin og vill ljúka ferlinum hjá Estudiantes. Samkvæmt TyC Sports hafa Racing og Estudiantes nú náð munnlegu samkomulagi eftir langar viðræður.
Estudiantes greiðir rúmlega 700 þúsund evrur fyrir varnarmanninn litríka. Einnig eru ákvæði um bónusgreiðslur til Racing fyrir hvern sigur sem Estudiantes vinnur með Rojo í liðinu.
Racing var lengi tregt til að leyfa Rojo að fara en Diego Milito, yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, gaf að lokum grænt ljós.
Rojo hafði sjálfur gert sitt til að fá félagaskiptin í gegn. Hann mætti ekki á síðustu æfingar Racing og samþykkti jafnframt að gefa eftir stóran hluta af skuld sem félagið átti við hann.
Rojo hóf feril sinn hjá Estudiantes og lék síðar með Spartak Moskvu, Sporting, Manchester United og Boca Juniors, auk Racing.