Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 05. nóvember 2020 18:29
Elvar Geir Magnússon
Örvar Eggerts riftir samningi við Fjölni
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Örvar Eggertsson hefur rift samningi sínum við Fjölni í Grafarvogi.

Hann var með ákvæði um að geta rift samningi sínum ef liðið myndi falla og nýtti sér það.

Örvar, sem er 21 árs, kom frá Víkingi Reykjavík í júní í sumar. Hann er sóknarmaður en var notaður í bakverði hjá Fjölnismönnum.

Örvar lék alls fimmtán leiki með Fjölni í Pepsi Max-deildinni í sumar en liðið vann ekki leik og féll niður í Lengjudeildina.
Athugasemdir
banner
banner