Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 05. desember 2020 22:39
Victor Pálsson
Martial og Cavani meiddust báðir
Mynd: Getty Images
Bæði Anthony Martial og Edinson Cavani eru að glíma við meiðsli eftir leik Manchester United og West Ham í kvöld.

Þetta staðfesti Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man Utd, eftir leik en hans menn höfðu betur með þremur mörkum gegn einu.

Rauðu Djöflarnir spiluðu virkilega slakan fyrri hálfleik en komu sterkir til leiks í þeim seinni og skoruðu þar mörkin þrjú.

Cavani fór af velli í hálfleik og var Martial tekinn útaf stuttu seinna þar sem hann fann til í vöðva.

Bruno Fernandes og Marcus Rashford komu báðir inná í hálfleik en Juan Mata leysti Martial af hólmi.

Hversu alvarleg meiðslin eru er ekki víst að svo stöddu.
Athugasemdir
banner
banner
banner