Sigurður Bjartur Hallsson er búinn að framlengja samning sinn við Grindavík út næstu leiktíð.
Sigurður er 21 árs framherji sem er uppalinn í Grindavík og á 39 mótsleiki að baki fyrir félagið, auk 5 leikja fyrir GG.
Sigurður var lykilmaður í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð og var markahæsti leikmaður Grindavíkur með 8 mörk í 19 leikjum.
„Sigurður Bjartur hefur tekið miklum framförum á síðastliðnu ári og það sést best á frammistöðu hans í sumar. Við í þjálfarateyminu höfum mikla trú á leikmanninum og teljum að hann geti orðið enn betri fyrir Grindavík á næsta keppnistímabili,“ segir Sigurbjörn Hreiðarsson, þjálfari Grindavíkur.
Grindavík endaði í fjórða sæti Lengjudeildarinnar, með 32 stig úr 19 leikjum.
Athugasemdir