Kólumbíska B-deildarliðið Union Magdalena mun leika í efstu deild í landinu eftir 2-1 sigur á Llaneros í umspilinu í gær. Það var þó nokkuð augljóst að úrslitunum var hagrætt í leiknum.
Llaneros var 1-0 yfir í leiknum. Union þurfti sigur til að tryggja sæti sitt í efstu deild.
Liðið jafnaði í uppbótartíma síðari hálfleiks og mínútu síðar kom sigurmarkið.
Leikmenn liðsins fengu að labba í gegnum vörnina óáreittir áður en markið var skorað. Stórfurðuleg uppákoma í Kólumbíu, sem þykir þó algeng, enda mikið um að leikjum sé hagrætt í landinu.
Markið má sjá hér fyrir neðan.
When your controller dies while playing FIFA:
— Parceros United (@ParcerosUnited) December 4, 2021
pic.twitter.com/Sl8pGFfGFo
Athugasemdir