Fotbolti.net
06.01.21 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Wolves lánar Ruben Vinagre til Famalicao (Staðfest)

Wolves lánar Ruben Vinagre til Famalicao (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bakvörðurinn ungi Ruben Vinagre hefur verið á miklu flakki á tímabilinu og er búinn að skipta um félag tvisvar.
Portúgalinn hóf tímabilið með Wolves í enska boltanum og spilaði nokkra leiki áður en hann var lánaður til Olympiakos í Grikklandi í október.

Vinagre hreif ekki hjá Olympiakos og fékk ekki mikinn spiltíma á þremur mánuðum. Hann hefur því ákveðið að skipta um lánsfélag og mun spila fyrir Famalicao út tímabilið.

Famalicao endaði í 6. sæti portúgölsku deildarinnar í fyrra en er í fallbaráttu á nýju tímabili, með 11 stig eftir 12 umferðir.

Vinagre er 21 árs og getur leikið í öllum stöðum á vinstri vængnum. Hann á 40 leiki að baki fyrir yngri landslið Portúgal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.