Fotbolti.net
06.01.23 - 10:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jack Butland til Man Utd (Staðfest)

Butland með Erik ten Hag, stjóra Man Utd.

Butland með Erik ten Hag, stjóra Man Utd.

Canon

Mynd: Manchester United

Manchester United hefur staðfest skipti markvarðarins Jack Butland til félagsins. Hann kemur á láni frá Crystal Palace út þetta keppnistímabil.
Butland fyllir í það skarð sem Martin Dubravka skilur eftir sig. Dubravka var á láni hjá United fyrri hluta tímabilsins en Newcastle vildi fá hann til baka þegar janúarglugginn opnaði.

„Ég hef spilað gegn David de Gea og verið með Tom Heaton í enska landsliðinu. Þeir eru markverðir í hæsta klassa og ég hlakka til að keppa við þá og styðja við bakið á þeim," segir Butland.

Butland er 29 ára og hefur verið hjá Palace síðan 2020 en aðeins spilað tíu úrvalsdeildarleiki fyrir félagið og hefur ekkert komið við sögu á þessu tímabili.

Butland á níu landsleiki fyrir England og var í HM hópnum 2018. Hann hefur hinsvegar ekki verið aðalmarkvörður í ensku úrvalsdeildinni síðan Stoke féll 2018.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.